icon
Uppselt

Briston Clubmaster Classic Chronograph 40mm - 24140.SA.T.27.NOG

kr59,900

Á lagerÁ lagerUppselt
Vsk. Innifalinn. Sendingargjald reiknast við greiðslu

Fallegt chronograph úr með grænni skífu og appelsínugulri nato ól. Úrið er með 100 metra vatnsvörn og þykkt og sterkt gler. 

Ef þú villt bæta skemmtilegu og öðruvísi úri í úrasafnið þitt, þá eru Briston úrin eitthvað fyrir þig. Briston úrin eru frumleg og glæsileg úr og er notast við náttúrulegar trefjar (e. acetate) í flesta úrkassana hjá þeim (sömu náttúrulegu trefjar og eru oft notast við í gerð gleraugna). Það má lesa betur um þessar trefjar hér neðar í umfjöllun um Briston úramerkið. Við erum með úrval af Briston leður- og nato ólum og stálkeðjum og er hægt að leika sér með litasamsetningarnar og útlitið á úrunum þeirra.

  • Efni úrkassa: Stál og náttúrulegar trefjar (e. acetate tortoise shell).
  • Ól: 20mm nato ól
  • Gler: Kúpt mineral gler (2.3mm þykkt)
  • Stærð úrkassa: Um 40mm
  • Þykkt úrkassa: Um 11.7mm
  • Vatnsvörn: 10ATM (100 metrar)
  • Úrverk: Rafhlaða (Miyota OS21)
  • Annað: Lume í vísum og klukkustundamerkjum sem getur lýst í myrkri
  • Ábyrgð: 2 ár
  • Askja: Merkt Briston

Briston er franskt úramerki og má rekja sögu Briston til ársins 2012 þegar Brice Jaunet nýtti margra ára reynslu sína og innsæi í úrabransanum til að hefja að framleiða eigin úr. Hann lagði upp með að leggja áherslu á góð gæði, góð verð og frumlegt og framandi útlit. Stofnandi Briston, Brice Jaunet hefur eins og fyrr segir gífurlega mikla reynslu í úrabransanum og hefur í gegnum tíðina unnið fyrir merki eins og Cartier, Baume & Mercier, Raymond Weil og Zenith. Briston notast oftast við náttúrulegar trefjar (e. acetate) sem er efni unnið úr plöntum sem er svo náttúrulega þurrkað í 2-3 ár og síðan skorið í smærri einingar. Þessu er síðan blandað saman í fallegri litaflóru og brætt í sitt einstaka útlit. Þessar náttúrulegu trefjar (e. acetate) hafa ekki nein skaðleg áhrif á húð manna og eru því oft notaðar til dæmis í gleraugu. Efnið er sterkt og endingargott og er hægt að pússa upp komi rispur í það.

Fá tilkynningu þegar vara kemur aftur í sölu

Framleiðandi: BRISTONSKU: 24140.SA.T.27.NOGEkki valið
Sunnudagur,Mánudagur, Þriðjudagur,Miðvikudagur, Fimmtudagur,Föstudagur,Laugardagur
Janúar,Febrúar,Mars,Apríl,Maí,Júní,Júlí,Ágúst,September,Október,Nóvember,Desember
Ekki nógu margar vörur eftir. Aðeins [max] eftir.
Sjá óskalistaFjarlæga af óskalista
Karfan mín

Karfan þín er tóm.

Aftur í vöruflokka

Senda skilaboð með pöntun Breyta skilaboðum
Áætlaður sendingartími
Bæta við afsláttarkóða

Áætlaður sendingartími

Bæta við afsláttarkóða

Afsláttarkóði reiknast á greiðslusíðu