Fallegt og vandað svissneskt úr fyrir börn með regnboga. Vatnsvarið úr með sterkri ól með öryggissylgju sem er hönnuð til að bregðast við álagi ef börnin festa sig.
Auðvelt að læra á úrið þar sem litli svarti vísirinn les svörtu tölurnar (klukkutímana). Stóri guli vísirinn les gulu tölurnar (mínúturnar). Mínúturnar sjást yst á skífunni og því tilvalið úr fyrir börn sem eru að læra að lesa á klukku.
Efni: BPA frítt lífrænt plast (framleitt á umhverfisvænari hátt)