Fallegt og vandað svissneskt úr fyrir börn með einhyrningi og tungli. Vatnsvarið úr með sterkri ól með öryggissylgju sem er hönnuð til að bregðast við álagi ef börnin festa sig.
Auðvelt að læra á úrið þar sem litli vísirinn er litla systir og þar sem hún bendir segir til um klukkutímana. Stóri vísirinn er stóri bróðir og þar sem hann bendir segir til um mínúturnar. Mínúturnar sjást á yst á skífu og því tilvalið úr fyrir börn sem eru að byrja að læra á klukku.
Efni: Lífrænt plast (framleitt á umhverfisvænni hátt)