Fallegt og vandað svissneskt úr fyrir börn með Hafmeyju. Vatnsvarið úr með sterkri ól með öryggissylgju sem er hönnuð til að bregðast við álagi ef börnin festa sig.
Auðvelt að læra á úrið þar sem litli blái vísirinn bendir á bláu tölurnar sem segir til um klukkutímana. Stóri hvíti vísirinn bendir á hvítu tölurnar og segir til um mínúturnar, sem sjást yst á skífunni og því tilvalið úr fyrir börn sem eru að læra að lesa á klukku.
Efni: Lífrænt plast (framleitt á umhverfisvænari hátt)