Orient Bambino eru einstaklega elegant og falleg úr með kúptu hertu gleri og skífur sem mjög gott er að lesa á. Orient Bambino eru með sjálfvinduúrverk og þarfnast því ekki rafhlöðu, heldur vinda sig sjálf á hendinni. Henta vel sem hversdags og setja punktinn yfir i-ið við sparifötin
Efni kassa: Stál
Armband: Stálkeðja
Stærð úrkassa: 38,4mm
Þykkt úrkassa: 12,5mm
Gler: Mineral
Vatnsvörn: 3ATM
Gangverk: Sjálfvinda, þarfnast ekki rafhlöðu (automatic)
Ábyrgð: 2 ár
Askja: Kemur í öskju merktri Orient
Orient eru japönsk úr sem eru framleidd í eigin verksmiðju og geta því boðið upp á einstaklega vönduð og vel byggð úr miðað við verð. Einnig eru úrin þeirra þekkt fyrir góða endingu. Rök má færa fyrir því að Japan, Sviss og Þýskaland séu fremstu úraþjóðir heims í dag og segja má að Orient sé eitt af þeim fyrirtækjum sem hafa komið japanskri úrsmíði á þann stall sem hún er í dag, en sögu fyrirtækisins má rekja aftur til 1901. Orient bjóða upp á úr fyrir þann stílhreina og látlausa, sem og úr sem tekið er eftir.